Ávaxtaviagra...

Alltaf gott þegar ávextir frá náttúrunnar  hendi geta tekið við af læknavísindunum...


Gangi honum vel...

Já....æ verði honum bara að góðu! Allt í lagi að prófa þetta, við konur yrðum guðs lifandi fegnar ef karlmenn tækju þátt í þessu líka!
mbl.is Sænskur karlmaður vill gefa brjóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áhættuþóknun?

Mér finnst að fólk sem er í svona störfum eigi að fá áhættuþóknun! Þessi störf eru illa launuð og hættuleg í ofanálag! Hver vill vinna við þetta?

Ekki ég allavega.....


mbl.is Slasaðist á hlaupum undan vistmanni á sambýli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að læra af reynslu annarra....

Hvenær skyldi fólk læra? Milljón dæmi um fíkniefnasmyglara tekna í svona löndum og fá hroðalega meðferð í fangelsi þar og svaka langan dóm. Hvernig þora menn þessu? Myndi ekki smygla súkkulaðistykki út eða inn í þessi lönd.....
mbl.is Tekin með 29 kíló af kókaíni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aflífum mannandskotann!

Hvað á að gera við svona menn? Ég vil láta drepa þá, þeir hafa fyrirgert lífi sínu með þessum gerðum.

Legg til að fólk hafi gætur á nágrönnum sínum, það er varla eðlilegt að stúlkurnar hafi getað búið þarna í öll þessi ár og enginn vitað neitt.

Finnst líka að yfirvöld ættu að rannsaka innviði trúarsöfnuða í heiminum. Það er hægt að gera allan andskotann í nafni trúarinnar!

Þetta er svo mikill viðbjóður að ég eiginlega stend alveg á gati....


mbl.is Jaycee hittir fjölskyldu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vandamál?

Bíddu....er eitthvert mál að tékka hvort kynið konan er? Þarf ekki nema rétt að kíkja á tólin og það sést um leið og ef hún hefur ekkert að fela, getur hún varla mótmælt því....
mbl.is Semenya fagnað í S-Afríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórfrétt

Síðan hvenær er það fréttnæmt að fólk setji hús á sölu? Björk eða ekki Björk.....er gúrkutíð hjá mbl.is?
mbl.is Björk setur hús á sölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konan ekki dómbær

Ég er voða fegin að hér á landi myndi enginn læknir setja upp svona mörg egg hjá neinni konu og þaðan af síður hjá sex barna einstæðri móður! En allt getur gerst í Ameríkunni og flest hægt að fá fyrir rétta borgun. Mér leikur forvitni á að vita hver borgaði þetta fyrir hana.....get ekki ímyndað mér hana hafa efni á þessu sjálf. Mér finnst ábyrgð læknanna þarna gífurleg og sorglegt hvernig einkaframtakið getur snúið hlutunum á hvolf.

Held að móðirin sé ekki dómbær og hafi í raun aldrei verið það, held að hún hafi ekki verið fær um að taka þessa ákvörðun. Það vill enginn sem er einn með sex börn og lélega félagslega aðstöðu eignast átta til viðbótar á einu bretti....þeas enginn sem hefur fulla dómgreind. Þar af leiðandi eru læknarnir ábyrgir.....sorglegt bara!


mbl.is Áttburamóðir sér eftir öllu saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búrka er mannréttindabrot

Mér finnst mannréttindamál að banna búrkur. Legg til að við Íslendingar höfum gát á hverjum við hleypum inn í landið og samþykkjum ekki klæðaburð á við búrkur. Sé kannski ekkert athugavert við höfuðklúta meðan andlitið sést en fólk á ekki að hylja sig á almannafæri.

Við eigum líka að fordæma kvennakúgun eins og viðgengst í mörgum íslömskum löndum og ekki leyfa fólki sem ekki virðir jafnrétti að koma hingað til landsins. Hef margoft verið í Danmörku og finnst skelfilegt að sjá allar þessar slæðuklæddu konur þar á götum!

Gerum ekki sömu mistök og grannþjóðir okkar. Verum á varðbergi gagnvart menningarstraumum sem sækja hingað í okkar fámenna land!


mbl.is Danir deila um búrkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úfff...birr

Er ekkert hættulegt að synda í fjögurra gráða heitum sjó í marga klukkutíma? Get skilið að gaman sé að bregða sér í sjóinn smá stund en það hlýtur að vera bara hættulegt fyrir heilsuna að vera svona lengi í þessum kulda....
mbl.is Syntu Grettissund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband