Móðir óskast?

Hvað með móðurina? Er hún ekkert inni í myndinni sem hugsanlegur uppalandi barnanna?

Gæti best trúað því að grey börnin séu orðin skemmd af sjúklegum uppeldisaðferðum Jacksons. Minnir að hann hafi meðal annars látið þau ganga með grímu til að koma í veg fyrir smitun, allir vita hversu sýklahræddur hann var. Eitthvað var talað um líka að hann hefði litað hárið á þeim ljóst, ég trúi því nú alveg upp á hann. Hvernig væri að láta einhver sem er ekki klikkaður sjá um uppeldi barnanna? Held nefnilega að pabbi hans sé ekki alveg maðurinn i það eftir því hvernig honum tókst til með poppgoðið....


mbl.is Vildi að Janet fengi börnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

mamma þessara tveggja eldri er búin að gefa út yfirlýsingu um að hún hafi ekki verið annað en útungunarvél fyrir þessi börn, þau voru getin með tæknifrjóvgun og hún kynntist þeim eiginlega aldrei ... það hefur aldrei komið fram nein móðir fyrir þann yngsta ... allt um þetta hér http://www.usmagazine.com/

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 30.6.2009 kl. 23:29

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Adda mín

Vona að börnin fái gott uppeldi og alla þá hjálp sem þau þurfa svo þau fari ekki skemmd út í lífið.

Guð veri með þér

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 1.7.2009 kl. 10:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband