Móðir óskast?

Hvað með móðurina? Er hún ekkert inni í myndinni sem hugsanlegur uppalandi barnanna?

Gæti best trúað því að grey börnin séu orðin skemmd af sjúklegum uppeldisaðferðum Jacksons. Minnir að hann hafi meðal annars látið þau ganga með grímu til að koma í veg fyrir smitun, allir vita hversu sýklahræddur hann var. Eitthvað var talað um líka að hann hefði litað hárið á þeim ljóst, ég trúi því nú alveg upp á hann. Hvernig væri að láta einhver sem er ekki klikkaður sjá um uppeldi barnanna? Held nefnilega að pabbi hans sé ekki alveg maðurinn i það eftir því hvernig honum tókst til með poppgoðið....


mbl.is Vildi að Janet fengi börnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólabókardæmi um fljótfærni....

Á hverju skyldi þetta samband hafa byggst? Maður spyr sig....

 


mbl.is Skildu á brúðkaupsdaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aaaaaðeins of langt gengið!

Hvað er í gangi? Fyrr má nú aldeilis hrífast af tónlistarmanni en að svipta sig lífi þegar hann deyr! Ekki alveg viss um að Michael Jackson sé kátur með að fólk drepi sig honum til samlætis. En það er greinilega fullt til af rugluðu fólki í heiminum....
mbl.is Aðdáendur Jacksons svipta sig lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljótleikinn uppmálaður

Mæli með að framvegis skuli vera haldin keppni hérlendis þar sem barist er um að vera ungfrú ljót eða herra ljótur. Fegurðarsamkeppnir eru tímaskekkja og kannski er bara ljótleikasamkeppni málið. Ýtir örugglega talsvert undir sjálfsálitið hjá mörgum.....
mbl.is Ljótustu hundar í heimi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband